Ísorku eRally Iceland er hluti af heimsmeistaramóti FIA ELECTRIC AND NEW ENERGY CHAMPIONSHIP - E-RALLY 2020.
Keppnin var haldin dagana 20.-22. ágúst í miklu blíðviðri og voru keyrðir 703 km þ.a. 407 km á sérleiðum.
Keppnin skiptist í tvo hluta, nákvæmnisakstur sem felst í því að keyra leiðina skv. leiðarbók og á uppgefnum hraða hverju sinni og hversu vel keppendum tekst að halda rafmagnseyðslu sem næst uppgefinni eyðslu frá framleiðanda (WTLP).
Í nákvæmisakstri sigruðu Arthur Prusak (POL) og Thierry Benchetrit (FRA) með 1.083 stig, í öðru sæti urðu Emmanuel Burel (FRA) og Chloe Burel (FRA) með 1.112 stig og í þriðja sæti urðu Didier Malga (FRA) og Anne-Valerie Bonnel (FRA) með 1.223 stig.
Í keppni um nýtingu rafmagns sigruðu Rebekka Helga Pálsdóttir (ISL) og Auður Margrét Pálsdóttir (ISL) með 9,6% meiri rafmagnsnotkun umfram uppgefna eyðslu frá framleiðanda, öðru sæti urðu Artur Prusak (POL) og Thierry Benchetrit (FRA) (11,1%) og í þriðja sæti urðu Guido Guerrini (ITA) og Francesca Olivoni (ITA) (12,1%).
Heiildarkeppnina sigruðu Artur Prusak (POL) og Thierry Benchetrit (FRA), í öðru sæti urðu Rebekka Helga Pálsdóttir (ISL) og Auður Margrét Pálsdóttir (ISL) og í þriðja sæti Guido Guerrini (ITA) og Francesca Olivoni (ITA).