Verður haldið dagana 24. til 26. maí n.k.
Í annað sinn kemur Jeremy Hill til landsins og heldur námskeið í kappakstri mótorhjóla hjá Kvartmíluklúbbnum en námskeiðið var einstaklega vel heppnað í fyrra.
Þrír dagar hlaðnir fróðleik um aksturslínur, líkamsbeitingu, mótorhjólin og persónulegar upplýsingar fyrir hvern og einn þátttakanda.
Jeremy hefur keppt og verið kennari í kappakstri á mótorhjólum í áratugi í Englandi.
Hann er aðalkennari BEMSEE, sem er stærsti mótorhjólakappakstursklúbbur Englands.